Að byrja
Spurningin,
um hvers vegna lagt sé úr hlaði,
er snauð tilgangi, starfi fyrir lærða menn
morgundagsins

skiptir ekki máli
hvort það er vegna afbrots sem móðir þín
hefði fyrirgefið
eða vegna uppburðarleysis, sem faðir þinn
hefði aðeins umbunað með hönd á öxl.


En ef þú fetaðir þennan stíg,
þjakaður af þunga grjótsins
sem greri í kviðarholinu
kanntu að hafa séð
snarkið í upplausn hins passíva ríkis, sem táknar
skugga,
upprisu þriggja sektartrjáa, sem tákna
skugga,
selestískan titring duftsins í hellinum, sem táknar
skugga,


nálgastu það með broti af léttúð.

Slys það sem á sér stað í transi
er gott slys.
Því ekki að leyfa því að eiga sér stað?


Á milli oddsins og blaðsins
lof veru þinni að þorna.
 
Kári Páll Óskarsson
1981 - ...


Ljóð eftir Kára Pál Óskarsson

Að byrja
Defetus I
Defetus II
Svelti
Tilbrigði við Niemöller
Oubliette