ævintýraför
Ég arka útí heim
með ferðatösku
sem er yfirfull
Ég pakkaði því helsta
bjartsýni
von
gleði
eftirvæntingu og
tannburstanum
Ég kom á leiðarenda
full af undrun
hræðslan leyndi sér ekki
Ein í þessu landi
enginn skilur mig
ég skil ekki heldur
Tek uppúr töskunni
raða í skápinn
sé að ég gleymdi
því allra mikilvægasta
Ég gleymdi að troða þér með!
með ferðatösku
sem er yfirfull
Ég pakkaði því helsta
bjartsýni
von
gleði
eftirvæntingu og
tannburstanum
Ég kom á leiðarenda
full af undrun
hræðslan leyndi sér ekki
Ein í þessu landi
enginn skilur mig
ég skil ekki heldur
Tek uppúr töskunni
raða í skápinn
sé að ég gleymdi
því allra mikilvægasta
Ég gleymdi að troða þér með!