Frikz
Með augun kastaníubrún
og hörundið svo silkimjúkt
að mig langaði að eiga þig
og vefja þig örmum mínum að eilífu

Varirnar voru sem síðasta strokan
í fallegasta málverkinu
sem aldrei þurrkast út
og varir um aldir allar

Ef skynsemin hefði ekki gripið í taumanna
og haldið aftur af hestum mínum
hefði ég sökkt mér í fegurð þína
og aldrei átt afturkvæmt

 
Þ.vilberg
1969 - ...


Ljóð eftir þ.vilberg

Til gangur lífsins
Svik
Frikz
Ég kalla á þig
Hafið
Minn