Leyndardómur hamingjunnar
Allir horfa á mig
en sjá ekki það sem bara ég veit.
Enginn fær að vita hver
það er sem hjarta mitt þráir.
Ekki einu sinni ég sjálf.
Sá leyndardómur er of stór
fyrir heiminn
sem er svo lítill hérna.
Hjörtun eru svo lítil
þau rúma aðeins eina ást.
Mitt hjarta hefur mörg hólf
eitt fyrir hverja ást.
Svo dreg ég þríblöðkulokuna
frá og leyfi mér að elska
og dreyma
en sjá ekki það sem bara ég veit.
Enginn fær að vita hver
það er sem hjarta mitt þráir.
Ekki einu sinni ég sjálf.
Sá leyndardómur er of stór
fyrir heiminn
sem er svo lítill hérna.
Hjörtun eru svo lítil
þau rúma aðeins eina ást.
Mitt hjarta hefur mörg hólf
eitt fyrir hverja ást.
Svo dreg ég þríblöðkulokuna
frá og leyfi mér að elska
og dreyma