Að taka við
Ef mér er boðið til einhvers
sem allt á
hvað þá
get ég gefið honum, mér frá?
Ef mér er boðið til einhvers
sem allt gaf
heilt haf
fjársjóði lífsins, allt sjálfum sér af?
Ef mér er boðið til einhvers
sem ég elska mest
líkar best
ætti ég heimsókn þeirri að slá á frest?

ihs

 
Ingunn Huld Sævarsdóttir
1983 - ...


Ljóð eftir Ingunni Huld Sævarsdóttur

Skin og skúrir
Haust
Besta jólagjöfin
Út í loftið
Veröld vorsins
Ræktin
Að taka við
Snjókorn falla
Má ég bjóða þér í te?
Með sumar í hjarta
,,Í kvöld...
Á óvart