Fljúgðu upp
Fallegi fugl,
nú opnast búrið
og ég sleppi þér,
sleppi af þér höndum
sem struku mjúkar fjaðrir

læt af þér augun

Þú ert frjáls
frá ástsjúkum huga,
eigingjörnum kærleika

Nú hljómar þinn saungur;
ekki lengur hér.....
en úti í lífinu annarsstaðar.

Ég man þig
og mun aldreigi gleyma




(4 júlí 2008)
 
Dick Dodd
1972 - ...


Ljóð eftir Dick Dodd

Viðkynning
Sigling
Í dalnum
Af lyginni
Púsluspil
Þær líðandi stundir
Fljúgðu upp
Nánd