Ferðalöngun
Mér finnst ég vera gagni gæddur maður,
glaður vil um heiminn taumlaus sveima.
Ferðast víða, rjóður, reifur, hraður.
En rosalega er gott að vera heima.

Þroska og anda ferðafýsnin bætir,
frelsar sál, þá depurð ég mun gleyma.
En ferðalagið man og mig það kætir.
Mikið er samt gott að vera heima.

Ísland á sér ótal fagra fossa,
í fjallahlíðum svalir lækir streyma.
Við aftann röðull sendir sæta kossa.
Samt er stundum gott að vera heima.

Heima sit ég styggur, lágt er lyndi.
Langa daga stytti með að dreyma.
Dreymi um mitt ævintýrayndi.
Er þá ekkert spes að vera heima?  
Ari Freyr Kristjánsson
1986 - ...
júlí '08


Ljóð eftir Ara Frey

Þú ert hálfviti
Hvað ertu að hugsa?
Útrás
Morgunljóð
Ég nenni ekki neinu
12. júlí í Klambragili
Rifrildi hjarta og hugar
Stelpur
Nýtt nafn
Stundum
Ferðalöngun
Örlaganornirnar
Hamingjan
Ef ég væri Guð
Ástarþrá
Ritstífla
Ástir og eirðarleysi
Frumburður andskotans
Haustun
Þunglyndi
Pirringur