Sett ofan í töskuna
Einhvern daginn munum við öll verða fertug
og þá, mun ég hitta þig í einhverju samkvæmi
þar sem ég verð reykjandi fyrir utan.

og þú munt spyrja mig hvernig ég hafi það
og ég mun svara að ég hafi það svosem fínt.
og ég mun spyrja þig að því sama
en ég veit ekki hverju þú munt svara
og svo verð ég kallaður inn
í samkvæmið aftur
en mun segjast ætla að vera
úti aðeins lengur.
 
Sigurður Landvinningur
1987 - ...


Ljóð eftir Sigurð Landvinning

Spakmæli róluvallarins
Leið mín að innri fegurð
Konan sem kveikir klofið mitt
Sumargleði Létt 96,7
Ást mín Ein
Strípidans
Þjóðsöngur ljóta fólksins
ládeyða
ástarjátning einmana manns
glefsur
keith faithful
Daginn eftir
Trojuhesturinn
Sett ofan í töskuna