Sálin Til Sölu?
Mér blöskrar við þeirri staðreynd
sem við búum við í dag!
við lifum í gerviveröld
þar sem peningar eru völd
markaðshyggja kapítalismi
tröllríður öllu(m)!!
að vera ungur er erfitt
að vera barn er erfiðara!

Hvern einasta dag
horfum við á
auglýsinga herferðir
ætlaðar börnum
með Sálfræðiaðferðum
lúmskar og lævísar
að þeim er beint
síað inn í saklausa
huga þeirra og menga!
að vera ungur er erfitt
að vera barn er erfiðara!

Það ríkir gemsa uppeldi í dag
að eiga gemsa er mikilvægt
ef þú ert tíu ára
því að "allir hinir
eiga svoleiðis í dag!"
ég verð að vera eins
annars laminn í spað
að vera ungur er erfitt
að vera barn er erfiðara!

Mamma og pabbi
reyna að afla tekna
til að kaupa Range Rover
og bensa
og stærra, flottara hús
flóknara "TV"
og síðast en ekki síst
"Playstation" barnapíu
"til þess að passa mig!"
að vera ungur er erfitt
að vera barn er erfiðara!

Það er klám innreið í gangi
hjá unglingum í dag
þar sem hópreið tíðkast
og að sjúga er lítið mál
að taka í rass
er ný getnaðarvörn
það verður jú engin
ófrísk af því!
að vera ungur er erfitt
að vera barn er erfiðara!

Í frímínútunum
dópsalar þyrpast að
viltu brúnt eða hvítt
eða viltu grænt gras?
eða ertu kannski komin(n) í
"Ellurnar?"
við bara reddum því
það er ekkert mál!

PoppTV "rúlar"
þar sem hætt er að hlusta
heldur er horft á
dillandi bossa
á "silicon" brjóst
ímyndir eins og
Britney Spears
hvar eru gildin?
eru þau að hverfa
í spillingu og græðgi
Das Kapital?!
að vera ungur er erfitt
að vera barn er erfiðara!!

Er sagan endalausa að endurtaka sig?
er nútíma Sódóma með ríkjandi völd?
er maðurinn í myrkri sjálfum sér týndur
selur hann sál sína og grípur í tómt?!
 
Villti Tryllti Villi
1976 - ...
Gamlt frá 1999


Ljóð eftir Villta Tryllta Villa

Kleppur
Andlegt Mein
Hljóðlát Nótt
Niðurtúr Maníunnar
Orðaglíma
Ég er/Ég var
Er Myrkrið Kyssti Kinn Næturinnar
Hugsun Í Einu Hendings Kasti
Horf inn
Ást fanginn
Elsku Jesú Kristur
Silki vafinn
Týnda Reikistjarnan
Sprikla Sprænur Áa
Skugginn
Í 5. Gír Orða
Reikningsskil
Óvissa innst í hugarórum hundrað og eins og á sem rennur niður laugaveginn
Kyrrðar Uppsprettan
Dimmi Dalur
Litaflóra Forna Lífa
Allt Sem Er
Bráð Lífsins
Básúna Heimskunnar
Tískusveifla Hljóðsins
Drullupollasull
Mergur Orðsins
Treysti Fyrir Tilfinningum Titrandi Af Ótta
8und Eilífðarinnar
Þyrnirósa Tár Vímunnar
Skóla Ljóð
Mogga Sverta
Bið - Hin 1000 ára bið
Musterið
ÞAÐ I
ÞAÐ II
Ljóðahljóð
Lótusblómið
Týndur
Kofi Tómasar Frænda
Ein-stök rök
Nú er orðið þögn
Von handa(n) skugga(ns)
Villta Vestrið
Á 4 Hjólum
Sundlaugur
Eldregn
Þegar Myrkrið Húmar Að
Herra Móri (Hraun í raun)
Það mallar í undirmeðvitundinni
Orðadettifoss - Rökkurró (Úr sjávardjúpi þroskans)
Trylltur Tilfinningadans
Andleg Heimska
Skóla Óli
Innan fúinn viður
Fótspor á Himnum (Englar Alheimsins)
Munkur á Alsælu
Þegar Myrkrið Húmar Að
Fíknin Brenglar Kjallarann
Hljóð himna
Ég Vil Mar
Útúrdúr Í Dúr
Sólarást
Harmur Hnýgur Á Herðar Mínar Niður
Orðinn Að Landa Lífinu Að Hlanda
"Fixa", redda, nota, verð að fá
Þrjár systur
Veika Genið
Gul Absúrd Hamingja
Gerðu Það Sjálfur
Kæra sál í sjálfsmorðshugleiðingum...
Sannleikurinn
Graður Sem Grjót
Loftkennd Ást
Á Ný
Vimmi og Gimmi
Sannast sannir vinir
Góð ráð
Andvaka
Sljór Símastaur
Daufblinda (Ósjálfráður spuni I)
Bráð Lífsins
Dánarfregn (Til minningar um Kurt Cobain)
Palli Var Engill Í Heiminum
Neðsta Lína Helvítis
Friðþæging hjartans
Sprikla sprænur áa
Viljastyrkur hugans.
Yin og Yang (
Heilum Móður Jörð (Hugleiðing)
Ljóð Í Myrkri Hljóð Í Styrki
Tímalitir
Gerpitrýn og viðkvæmt postulín
Orðaglíma (Lengri útgáfa)
Ein Stök Rök
Gredda Eldfjallsins (Lengri útgáfa)
Gredda Eldfjallsins (Frumþörfin frumútgáfa)
Jarðtengdur (Óþekk(t)a ljóðið að handan)
Hugurinn er Musteri
Penninn er máttugri en sverðið
Rafhljóðaljóð (Óður)
Ég skora ljóð (Með hannyrðum hugans og fót bolta orðsins
Prósi
Platónsk Ást - Andleg Fegurð
Orðaglíma
Ljóðadúfa
Óendanleg Lúppa Forlaganna
Svefnlaus Koss
Fljótandi Andi
Í landi rauðra bauna og grænna jarðarberja
Himneskt Torg Hugans
Hinsta Kveðjan
Úlfur Úlfur/Spegilmynd Sálar
1000 Hugmyndir á Mínútu/Alkemistinn í Langtíburtistan/Fantasía
Í leit að haf steini
Sálin Til Sölu?
Skóli Lífsins
Ákall Andanna
Fljóðahljóðaljóða Bylgjan
Reiki Stjarnan Fantasía II (Lengri útgáfa um Týndu Reiki Stjörnuna)
15. Janúar 2004 - "Var Ástin Blind?"
Spennitreyju Blús (Prósi)
Ljóðasteinn
Áttund Eilífðarinnar
Hinir órannsökuðu vegir facebook og internetsins (Internet ljóð)
Í Sjúkum Borgarsykri Óttans (Óð Þjóð)
Alheimsguð (Manía)