Í þjónustu konungs Kapítal
Ég sit hér, aleinn, í stórri skólastofu,
fullri af mis námsfúsu fólki.
Málið er að mig svíður í stóru sári,
mig svíður svo ofsalega sárt!

Ég lít í kringum mig,
sé Gucci þetta,
Prada hitt. -
Ég sé nýju klippingu Ariana Grande,
og nýju hárgreiðslu Kim Kardashian.

En hvað annað?
Ekkert, nema steingerðar og
fallega skreyttar grímur.

En sárið í sálinni svíður og svefninn mín bíður,
og fer þá burt allt, og í gleymskunni fæ að ráfa,
uns ég vakna og man
að ég gleymdi Michael Kors töskunni heima!
 
JST
1980 - ...


Ljóð eftir JST

Konan með kyndilinn
Fugl
Flótti
Í þjónustu konungs Kapítal
Prinsinn
Engillinn fríði