Hola í hjartanu
Það er hola í hjartanu
Finn það er eitthvað sem að vantar
Það renna tár niður vanga mér
Þegar ég hugsa að þú ert ei lengur hér

Skildir mig eftir með allar þessar minningar
Ræð ekki við þessar tilfinningar
Langar að brjótast út og finna fyrir þér
Því ég vil hafa þig hjá mér

Bara ef ég gæti snúið til baka
Aðeins til að kveðja
Ég sakna þín alla daga
Engillinn minn

Þú ert ljósið í myrkrinu
Og hlýjan í birtunni
Þú ert stjarnan sem skín skærast á himninum
Þú ert minningin í hjartanu

Ég hugsa um þig á daginn og dreymir þig á nóttunni

Það er hola í hjartanu.  
NLOS
2007 - ...
Þennan texta samdi ég þegar elsku besti Patrekur kvaddi okkur allt of snemma. Hann var góður, skemmtilegur og mjög fyndinn. Með hjarta úr gulli, sakna þín <3


Ljóð eftir NLOS

Brotin hjörtu
Afi Pálmi
Hola í hjartanu
Eitrað
Hann...
Ást við fyrstu sín ( Boy version)