Segull
Ég veit alveg
af hverju
þú ert svona
eins og þú ert

þú fékkst þína
níðþungu
bagga

sem hafa
verið ferjaðir
kynslóð eftir
kynslóð

aftur og
aftur

þeir soga
í sig
allskonar

nýtt og
gamalt rusl

eins og
sturlaður
segull.

Ég veit
þú reyndir

en segulsviðið
var of sterkt.  
sms
1983 - ...


Ljóð eftir sms

Leit
Um hann
Að vera
Áhorf
Heimkoma
Fyrir þig
Segull
Mynstana skógur
Af hverju