Mynstana skógur
Ég þurfti að
berjast fyrir
athygli þinni

tipla
þennan tryllta
meðvirknidans

þar sem andi minn
var troðinn
niður

frumum mínum
afneitað

brosið mitt
varð bros
einhvers annars

og röddin mín
varð ýmist að
óskýru hvísli

eða háværri
heift

ég varð þér
ógn svo þú
kipptir mér
niður

traðkaðir á mér
dældir
skordýraeitri
um allt

og ég dró mig saman
eins og vængjalaust
fiðrildi í púpu

reif svo púpuna af mér
of snemma
og breyttist
í mannskætt ljón

og
flakkaði
um sinn

heim úr heimi
föst í
mynstrana
skógi.  
sms
1983 - ...


Ljóð eftir sms

Leit
Um hann
Að vera
Áhorf
Heimkoma
Fyrir þig
Segull
Mynstana skógur
Af hverju