Fall
Í mynd skrjáfandi
hausts
horfir
hlustar
íklætt grænum lit
vonarinnar
brosir
bíður
kossa lituðum
loforðum
roðnar
hnígur
tígulega
fölt til jarðar
snertir
strýkur
brúnar hendur
trjánna
kyssir
faðmar
með lokuð augun
gráa götuna
bíður
vonar
eftir vindi
og nýju vori.