Eyrún
Þú ert mitt bros, þú ert mín kæti,
þú ert það sem ég þrái mest.
Sama hvað ég breyti og bæti,
alltaf þekkir þú mig best.

Er allt í kringum mig er myrkur,
sendir þú þitt ljós til mín.
Þú ert mín von, þú ert minn styrkur,
ég veit ei hvar ég vær\'án þín.

Þótt orðaskiptin séu oft hörð,
ég ber sama hug til þín.
Jafnvel þó að skilji heil jörð,
alltaf ertu systir mín.  
Svanhvít
1981 - ...


Ljóð eftir Svanhvíti

Allar nætur
Á ný
Bara ég
Eyrún
Frelsun
Fyrirlitning
My first and my everything
Særing
That day
The first love
Augnablik
19. 06. 2000
Söknuður