Munaðarnes (sólarlag)
I.
risavaxinn tanngarður
gleypir sólina
smátt og smátt

hér á ég heima

II.
hversu gott er hér
að ganga
með þér

arm í arm
við endamörk veraldar
 
Ingibjörg Ágústsdóttir
1970 - ...


Ljóð eftir Ingibjörgu Ágústsdóttur

ósnortinn
Munaðarnes (sólarlag)
Fiðrildi (I)
Fiðrildi (II)
ég er ströndin
nýtt ljós
Yfir lækinn
Ghost of my heart
Melons after midnight
þessi stóri