kvísl
ésé agnarögn af heildinni, geri mér grein fyrir hversu ögnin er smá.

blæs á óttan við stormsveipi tilfinningana. horfi á eftir egóinu hrapa í gleymsku fortíðar minnar.

þrálátar áminningar um vinda sem ekki linna verðað finna ér ekki nálægt brotarbroti af agnar parti endaleysis.

... óupplýstur sannleikur inní mér dvelur.

elur af sér óþekkta þróun, suma kvelur en aðeins mér gefur von um svarið sem aldrei kom.

 
Lia
1982 - ...


Ljóð eftir Liu

Óður til geðhvarfar
inní mér
lísa í undralandi
klukkan þrjú á laugardagsnótt
tjáningarbland í poka
hraðskrift á ritvél
stikkorð tjáningar minnar
te og sígó
í sjónum sé ég
que anida
éso þreytt
kvísl
lögmál heimsins, held ég.
ég vil