Rökleysa
Hver er tilgangur flipans?

og rannsakandi leit ég í kringum mig
bjóst ekki við svari
enda ekkert svar

og hvers vegna að trúa?

er ekki nóg að halda
eða að vona
enda best bara vita

Gafflar eru líka ónauðsynleg munaðarvara
skapaður til að gera auðvelt líf
auðveldara

Skiptir skiptingin máli
hún átti aldrei að vera mér erfið
en sjáið og teljið mér trú um
að svo sé

getur val verið þvingað
eða er alltaf allt
frjálst

hvers vegna er allt um
fjöllun
en ekki bara fjallað

Einbeitingin mín
er umbreyting mín
er afbökun mín
er tilhlökkun mín
er vonin mín
í vonleysinu  
Kristinn Ágúst
1984 - ...


Ljóð eftir Kristin Ágúst

Lífsins speki I
Ástin einfölduð
Eyðimörk
Lífsins speki II
Eilífðin
að Utan
Kynning
Snertur
Minningar
Lífsvilji
Góða nótt
slúður
Rán
Alheims menning
Þreyttur á öllu-m
Yndislegt kvöld í Reykjavík
Líf á Fróni
Árstíðir
fegurðardrottning
Fyrirmyndarást
Áskorun
Leyfar miðbæjarins
Blóðfórn heimsins
Eftir vinnu
Frekja
Gullnahliðið
milli A og B
Hamfarir
Fanginn af ást
Orðið
Er
Draumur drengs sem upplifir einelti
Tilgangur
Rökleysa
Seinustu sekúndur heimsins
Von skáldsins
Kvöld víman
Líf trúleysingja
Palli var einn í heiminum
Maðurinn er dauður
Hetjusögur
Borgarævintýri
Hugskot
Morn
(ó)rökfærsla þess að við ættum að vera saman
Svenni Og Sigga
Óralangur vegur inn í hjarta þitt.
Ósagður
Varnarræðan virkaði
Talandi um sykur
Told’ya
Draumar