Að yrkja ljóð
að yrkja ljóð
er eins og að yrkja jörð
með smá natni
vex kannski eitthvað nýtt
klippir trén, tekur út orð
eftir rigninguna
geturðu svo hlýjað hjarta þínu
við orðin, við trén
og horft á þau vaxa
er eins og að yrkja jörð
með smá natni
vex kannski eitthvað nýtt
klippir trén, tekur út orð
eftir rigninguna
geturðu svo hlýjað hjarta þínu
við orðin, við trén
og horft á þau vaxa