Kattartilvera
Uppá þaki einn hann liggur
öruggur í lífsins sjó.
Af illsku heimsins orðinn styggur
öllu tekur þó með ró.

Horfir yfir heimsmynd sína
hugur reikar víða.
Brátt mun blessuð sólin skína
og bæta sár og kvíða.  
Geir Thorsteinsson
1948 - ...
Sumir kettir geta líka brosað !


Ljóð eftir Geir Thorsteinsson

Hauststemma
Í nótt
Vorkoma
Ljóðstafir
Nútíminn
Dagrenning
Veiðiferð
Stökur um ást
Morgunn
Tjörnin mín heima
Kattartilvera
Haustvísur
Jólin koma
Vorið er komið