<br>Norma E. Samúelsdóttir fæddist í Skotlandi 1945 og er af skosku faðerni. Norma flutti til Íslands árs gömul ásamt foreldrum sínum og bjó ásamt þeim á Melunum í Vesturbænum bernsku- og unglingsár sín. Hún dvaldi í Hnífsdal hjá móðufólki sínu nokkur sumur á bernskuárunum. Gift, fráskilin, þriggja barna móðir. Bækur eftir Normu eru farnar að nálgast tuginn, mest ljóðabækur, en einnig sögur.