060606
06.06.06
mun heimurinn eins og þú þekkir hann enda
öll rökvísi líður undir lok
litir munu hverfa
karlar verða konur
börn verða gamalmenni
tónlist verður að þögn
dýr fara að tala
þar sem áður voru fætur
verða hendur
þú munt tala með augunum
sjá með nefinu
finna lykt með eyrunum
dauðinn verður ekki til
okkur mun fjölga
fjölga þar til ekkert pláss verður eftir á jörðinni
þá munu líkamar okkar allra renna saman
og við munum þekja jörðina
þangað til hún kafnar
og deyr
 
Dagný Náttsól
1979 - ...


Ljóð eftir Dagnýju Náttsól

Þér munu hefnast syndirnar
Frjókorn ástarinnar
Óður til tónlistamannsins
Draumur
060606
Geðveiki
Ánauð
Samband okkar
Þunglyndi
Sér þú mig?
Sál fyrir sál