Sér þú mig?
sérðu stjörnurnar í augum mínum
þegar ég horfi á þig
heyrir þú tónlistina í rödd minni
þegar ég tala við þig
finnurðu angann ástar minnar
þegar ég er nærri þér
eða sérðu mig nokkuð yfir höfuð
þegar ég stend fyrir framan þig!
 
Dagný Náttsól
1979 - ...


Ljóð eftir Dagnýju Náttsól

Þér munu hefnast syndirnar
Frjókorn ástarinnar
Óður til tónlistamannsins
Draumur
060606
Geðveiki
Ánauð
Samband okkar
Þunglyndi
Sér þú mig?
Sál fyrir sál