óvart
þau vöknuðu saman.
þýðir það samband?

vandræðalegt,
að vita ekki sannleikann.

hún var farin,
hann saknaði hennar.
hann var farinn,
hún saknaði hans.

gagnkvæmur söknuður ríkti,
þýðir það ást?

-hæ.
-hæ.
-ég saknaði þín.
-ég saknaði þín.
-hvað þá?
-ég veit ekki.

það var ekki tilgangurinn.  
ess
1986 - ...
desember 2004


Ljóð eftir ess

óvart
fiðrildin
kaffi
skömm
blendnar tilfinningar
eitur
sakn
þú
erfiður gaur
sjálfsblekking
tilhlökkun