Jólin koma
Yfir landi er fagur feldur
fannhvít mjöllin hrein.
Í höll og koti kærleikseldur
sem kveikir trúin ein.

Nú hátíðlega höldum jól
huga verður rótt.
Húmið leggst um laut og hól
lygn er vetrarnótt.

Allir sáttir una við
er sérhver núna hefur
Helgin veitir hjartafrið
hamingjuna gefur.  
Geir Thorsteinsson
1948 - ...


Ljóð eftir Geir Thorsteinsson

Hauststemma
Í nótt
Vorkoma
Ljóðstafir
Nútíminn
Dagrenning
Veiðiferð
Stökur um ást
Morgunn
Tjörnin mín heima
Kattartilvera
Haustvísur
Jólin koma
Vorið er komið