

Í blautum draumum mínum,
djúpt í þanginu.
Mjúkt hár þitt, eitt með sjávargróðanum.
Og þú svarar blítt en hálfflissandi
spurningum þarakattarins.
Kúskeljar í perlufestum.
Það elska þig allir.
Allir stökkva á djúpið eftir þér
og róa að því öllum árum að fanga þig í faðmi sínum,
en þú ert liprari á sundinu.
Og ég sem er ósyntur
stend á öskrandi blístri í flæðarmálinu,
af nötrandi þrá.
Þú ert svo helvíti töff á baðfötunum;
bobbingar í kúskeljum og perlufestum.
djúpt í þanginu.
Mjúkt hár þitt, eitt með sjávargróðanum.
Og þú svarar blítt en hálfflissandi
spurningum þarakattarins.
Kúskeljar í perlufestum.
Það elska þig allir.
Allir stökkva á djúpið eftir þér
og róa að því öllum árum að fanga þig í faðmi sínum,
en þú ert liprari á sundinu.
Og ég sem er ósyntur
stend á öskrandi blístri í flæðarmálinu,
af nötrandi þrá.
Þú ert svo helvíti töff á baðfötunum;
bobbingar í kúskeljum og perlufestum.