Bestu Orðin Búin
Hvernig þykist ein nútímasál
ætla að gera fyrir því ráð
að henni muni takast
að skrifa eitthvað merkilegra
eitthvað sæmilegra
eitthvað betur samsett ritverk
en snillingar fortíðarinnar?
Er öll von úti fyrir okkur þau
sem þykjumst geta hruflað
á pappír nútímans
einhver orðatiltæki
með rími eða án
jafnvel án hrinjanda
ekki með stuðlum
ekki höfuðstöfum?
Getum við kallað þannig ljóð - ljóð
hvert er okkar framlag
samanborið við það sem fyrir er?
Er einhverju við að bæta?
Kannski er heppnin okkur í hag
því hefðbundin, margtroðin slóð
er ekki í \"móðins\" í dag
gerist ég því kræf og kalla þetta hér að ofan
ekki hefðbundið ljóð - ekki nútímaljóð...
heldur bara fráviksljóð.
ætla að gera fyrir því ráð
að henni muni takast
að skrifa eitthvað merkilegra
eitthvað sæmilegra
eitthvað betur samsett ritverk
en snillingar fortíðarinnar?
Er öll von úti fyrir okkur þau
sem þykjumst geta hruflað
á pappír nútímans
einhver orðatiltæki
með rími eða án
jafnvel án hrinjanda
ekki með stuðlum
ekki höfuðstöfum?
Getum við kallað þannig ljóð - ljóð
hvert er okkar framlag
samanborið við það sem fyrir er?
Er einhverju við að bæta?
Kannski er heppnin okkur í hag
því hefðbundin, margtroðin slóð
er ekki í \"móðins\" í dag
gerist ég því kræf og kalla þetta hér að ofan
ekki hefðbundið ljóð - ekki nútímaljóð...
heldur bara fráviksljóð.