Á sama tíma
Þegar lognið
opnar leiðina
út á miðin
í skammdegis myrkrinu

þá rísa sjómenn
úr rekkjum
stefna á djúpbankann
til að taka út

kvótann

sem þeir höfðu
keypt á ofurverði
og selja fyrir lítið

Á sama tíma
ganga um á sundskýlum
á sólarströndum
þeir sem seldu

kvótann

og láta sér fátt um finnast
þótt landslög segi
að kvótinn
sé eign þjóðarinnar

því þeir vita nefnilega
hvar Davíð keypti ölið

og að hann slöngvar þann
sem eitthvað ybbar sig.  
Janus Hafsteinn Engilbertsson
1942 - ...


Ljóð eftir Janus Hafstein

Á vordögum
Þvílíkur dagur
Haustlauf
Endurkoma
Uppgjör daganna
Eftirmáli
Kvótablús
Skipið
Trú
Gamall vinur
Á sama tíma
Fríða frá
Þagnar ljóð
Eina ástin
á bryggjunni
Nálaraugað
Vetrarsólstöður
Stafalogn
Úreldir
Að lifa
Að fæðast
Þunglyndi
Efinn
Meira en veðurspá
Steinarr í maga úlfsins
Lænur himins
Faðmlag
Að sigla
Jafnvægi
Máttvana
Vorboði
Vinur
Ljóð vegur mig
Kvótablús taka tvö
innistæðulaus orð
Dagatal
Sólarlandasæla
Í kvöld er ég glaður
Undir sænginni
Ísland í dag
Konu eins og þig
Örlög
Raunasaga
Aflaklóin
STAM