Augnablik
Ef ég blikka augunum, breytistu þá?
Verðuru sá sem ég sakna?
Mun allt verða einsog það var?

Eitt augnablik tekst mér að blekkja sjálfa mig.
Mér finnst einsog ég liggi með honum
og ég er hamingjusöm.

En raunveruleikinn rennur fljótt upp fyrir mér
er ég heyri andardrátt þinn,
finn að þú heldur vitlaust utan um mig
og hreyfir þig öðruvísi.
Þú lyktar líka öðruvísi.

Á þessu augnabliki veit ég að ég hef gert mistök.  
Svanhvít
1981 - ...


Ljóð eftir Svanhvíti

Allar nætur
Á ný
Bara ég
Eyrún
Frelsun
Fyrirlitning
My first and my everything
Særing
That day
The first love
Augnablik
19. 06. 2000
Söknuður