Aðdáandi nr. 1
Þú gengur um
í augum mínum
án þess að sjá mig.

Þú rennur um
æðar mínar
án þess að heyra
hjarta mitt slá.

Þú veist ekki af mér
en án mín
værir þú ekkert.  
Guðjón Bergur Jakobsson
1977 - ...


Ljóð eftir Guðjón Berg Jakobsson

Til minnis:
Leyndarmálið
Tvö pör
Dægrastytting
Sameining
Í dýragarði
Augu
Augnablik
Hringrás
Tveir skuggar
Lífið í blokkinni
Engill
Nóttin þín
Aðdáandi nr. 1
Hver er tilgangurinn ?
Gaman að þessu