Tregi
Tónar flögra,
dansa.
Leika sér með loftinu
líkt og sápukúlur í vindi.
Feykjast svo um koll
og deyja við fæðingu.
Gluggatjöld bærast,
rúmið autt.
Þar sem fólk hefur átt ástarfundi
en er nú aðeins minning.
Salir emja,
skrækja.
Eirðarleysi heltekur vindinn
sem áður var sem gola,
hann dansar nú stríðsdans um heiminn.
dansa.
Leika sér með loftinu
líkt og sápukúlur í vindi.
Feykjast svo um koll
og deyja við fæðingu.
Gluggatjöld bærast,
rúmið autt.
Þar sem fólk hefur átt ástarfundi
en er nú aðeins minning.
Salir emja,
skrækja.
Eirðarleysi heltekur vindinn
sem áður var sem gola,
hann dansar nú stríðsdans um heiminn.