særð
Sært hjartað
heltekur líkamann,
ég þrjóskast við og reyni
felli tárin í leyni
Sært hjartað
svignar undan sársauka
en ég þrjóskast við og reyni
svo mascarinn leki ekki niður að beini.
Sært hjartað
nær yfirhöndinni
ég þrjóskast við og reyni
ég gefst upp
loka augunum, ég er farin
ég er dáin og grafin.  
ikha
1985 - ...


Ljóð eftir ikha

Leiðin...
Endir
skuggalegur grátur
snýkjudýrið
Ljót fegurð
gerðir.
góða nótt
særð
bless... í bili
ölduhaf í fjöru