Minningin um fyrsta kossinn okkar
Aðdragandinn virtist langur
enda mikilvægt að fanga
rétta augnablikið.

Fingur sveif hægt
niður að takkanum.

Smellur!
Blindandi flass
sem aldrei virtist taka enda.

Framkölluð
á stundinni
og hengd upp á vegg.

Þar stendur hún ennþá
jafn skýr og daginn
sem hún var tekin.  
ham
1982 - ...


Ljóð eftir ham

Hæka
Þetta kvöld
Skurður
Vormorgunn (einn á ferli)
Ógnarveður
Fiðrildið
Tvær um eina (hækur)
Ákallandi tilkynning
Hugarflug (hæka)
Fjandans fjötrar
Lífið er
Bak við skjáinn
Götuvitar nátthrafna
Ófagnaðarfundur
Sjálfsvorkunnaróð ljóð
Örlítil pæling varðandi líf mitt og tilgang þess
Spjöll
Heiðarleg ást
Fornleifar
Skot úr myrkri
Draumstafaljóð
Ég vil ekki sjá
Á Sprengjusandi
Vetrardagur
Aðfangadagsmorgunn
Rauð rós
Tanka
Einlæg ósk
Skáldgyðjan mín
Minningin um fyrsta kossinn okkar