Ekki meir.
Ég svara því sem þú sagðir
ég svara því seinna í dag
ég svara þeim orðum úti bláinn
og svo mælum við aldrei meir.

Ég gef þér allt sem þú gafst mér
ég gef þér allt sem eittsinn var
ég gef þér það sem við áttum
og svo gefum við aldrei meir.

Og víst var hún þung mín byrði
að þekkja skil á nóttu sem degi
og þó ég svaraði og þó ég spyrði
yrði það aldrei nokkurs virði.

Ég sendi þér ljóð mín úr laumi
ég sendi þér koss frá haustsins kvöl
ég sendi þér geisla frá glösum
og svo gaf ég þér aldrei meir.

Hvert sem þú ferð þar var ég
og hvar sem þú náttar þar svaf ég
hvar sem þú hvílist þar lá ég
hvar sem þú verður þar verð ég.

Og víst var hún þung mín byrði
að þekkja skil á nóttu sem degi
og þó ég svaraði og þó ég spyrði
yrði það aldrei nokkurs virði.

Ég get séð myrkur að morgni
og mánann um bjartan dag
ég heyri en hlusta þó aldrei
ég horfi en sé þig ekki meir

Manstu þá morgna er hurfu
manstu það sem ég ekki var
ekkert er heilagt né hlálegt
og hingað kem ég svo aldrei meir.

Og víst var hún þung mín byrði
að þekkja skil á nóttu sem degi
og þó ég svaraði og þó ég spyrði
yrði það aldrei nokkurs virði.



 
Guðni Már Henningsson
1952 - ...


Ljóð eftir Guðna Má Henningsson

Ófædd andvana
Reikistjarna
Ég leitaði.
Getsemane.
MYNDIR OG MINJAGRIPIR.
Ástarsaga
MANSTU ÞÁ VINDA
Vögguvísa.
Af himnum ofan
Gleym mér ei.
Babylon borg ánauðar
Siggi Sigg.
Úlpuklædd sól
Ég er.....
Komdu fagnandi.
Þar sem jörðin skalf.
Ég veit.
GUNNU LEIÐ.
Ekki meir.
Ég er ekki.
Sögulok
Hér er mitt
Sá ekki til sólar
Blómin á botninum
Kvæði um Guð og menn
Ergo
Allt sem við áttum
Ég á þig
Við getum ekki dansað meir
Mánudagur.
Við héngum saman.
Softly and tenderly ný þýðing.
Sólarsamba # 2
Skáldaðu skáldmenni
Meyr
Seint
Svefnlaus nótt
Í nótt
Gjáin
Þú
Steinninn sem hamast.
.........og svo ertu farin.
Fóstra mín.
Fuglar
Endalokin
Blóm
Steinn
Veður
Bergperlur
Leit
Sagnlaus
Tvíburinn minn.
Ekki minnast á morgundaginn.
Dimmar stundir
Norðanáhlaup
Regn
Í minningu vindsins
Vorvísa
Gærdagur
Presturinn
Í mánaskini
Það er ennþá maí.
Myndir
Fótspor
Perla
Glíma
Hönd í hönd
Esja
Glíma
Regnboginn grætur
Augnablik
Stúlkan mín.
Aladdinn og lampinn
Járnsól
Myndir
Nýr máni
Jónas Hallgrímsson
Litir