Stúlkan mín.
Þeir störðu á mig með stjörfum augum
og stilltu mér upp við vegg
ég hýrðist einn á heimskautsbaugum
í heimskautaísinn ég áfram hegg
það var ekki ég sem sálina vildi sýna
ekki ég heldur stúlkan mín frá Kína.

Þeir bentu á mig með brugðum sverðum
og báru mig fyrir því
að hafa stjórn á þér og öllum þínum gerðum
og því var höfuð mitt þungt sem blý
það var ekki ég sem valdi þessa slitnu skó
ekki ég heldur stúlkan mín frá Mónakó.

Þeir hötuðu mig og heiftin var mikil
en hérumbil einskis verð
þeir áttu hurðir en engan lykil
og einskisnýt voru þeirra sverð
það ver ekki ég sem skrifaði ljóð mín í sand
heldur stúlkan mín sem færði mér hið rússneska land

Það var ekki ég sem drapann
ekki ég heldur stúlkan mín frá Japan.
 
Guðni Már Henningsson
1952 - ...


Ljóð eftir Guðna Má Henningsson

Ófædd andvana
Reikistjarna
Ég leitaði.
Getsemane.
MYNDIR OG MINJAGRIPIR.
Ástarsaga
MANSTU ÞÁ VINDA
Vögguvísa.
Af himnum ofan
Gleym mér ei.
Babylon borg ánauðar
Siggi Sigg.
Úlpuklædd sól
Ég er.....
Komdu fagnandi.
Þar sem jörðin skalf.
Ég veit.
GUNNU LEIÐ.
Ekki meir.
Ég er ekki.
Sögulok
Hér er mitt
Sá ekki til sólar
Blómin á botninum
Kvæði um Guð og menn
Ergo
Allt sem við áttum
Ég á þig
Við getum ekki dansað meir
Mánudagur.
Við héngum saman.
Softly and tenderly ný þýðing.
Sólarsamba # 2
Skáldaðu skáldmenni
Meyr
Seint
Svefnlaus nótt
Í nótt
Gjáin
Þú
Steinninn sem hamast.
.........og svo ertu farin.
Fóstra mín.
Fuglar
Endalokin
Blóm
Steinn
Veður
Bergperlur
Leit
Sagnlaus
Tvíburinn minn.
Ekki minnast á morgundaginn.
Dimmar stundir
Norðanáhlaup
Regn
Í minningu vindsins
Vorvísa
Gærdagur
Presturinn
Í mánaskini
Það er ennþá maí.
Myndir
Fótspor
Perla
Glíma
Hönd í hönd
Esja
Glíma
Regnboginn grætur
Augnablik
Stúlkan mín.
Aladdinn og lampinn
Járnsól
Myndir
Nýr máni
Jónas Hallgrímsson
Litir