Tálsýnirnar
Þið tíu þúsund tálsýnir
með ykkar fögru andlit:
Þið tælið mig með töfrandi loforðum
um fegurra líf á morgun.
Þið tíu þúsund tálsýnir:
Þið kæfið mig, særið, skerið.
Þið veitið mér hið mýksta náðarhögg
sem á endanum byrgir mér sýn
svo ég sé ekki ljósið fyrir ykkur.
-Ég blindast
Þið tíu þúsund tálsýnir
sem elskið mig með allri ykkar girnd:
Þið veitið mér hinar myrku gjafir ykkar
af ykkar einskæru miskunn og náð.
-Ég sofna
með ykkar fögru andlit:
Þið tælið mig með töfrandi loforðum
um fegurra líf á morgun.
Þið tíu þúsund tálsýnir:
Þið kæfið mig, særið, skerið.
Þið veitið mér hið mýksta náðarhögg
sem á endanum byrgir mér sýn
svo ég sé ekki ljósið fyrir ykkur.
-Ég blindast
Þið tíu þúsund tálsýnir
sem elskið mig með allri ykkar girnd:
Þið veitið mér hinar myrku gjafir ykkar
af ykkar einskæru miskunn og náð.
-Ég sofna