Samviskubit
Syndaflóð í svörtu bergi
myrkar sálir renna í eitt.
Opið sár á köldu hjarta,
þó þú skilur ekki neitt.
Snjóflygsur sem klessast saman,
svefnlaus situr einn við borðið
tromma fingur, hugur tómur
-í upphafi var orðið.
Gegndrepa af eigin tárum
hugur blæðir, sársaukastingur
heljartaki um sálina kreppa
svartir, kaldir fingur.
myrkar sálir renna í eitt.
Opið sár á köldu hjarta,
þó þú skilur ekki neitt.
Snjóflygsur sem klessast saman,
svefnlaus situr einn við borðið
tromma fingur, hugur tómur
-í upphafi var orðið.
Gegndrepa af eigin tárum
hugur blæðir, sársaukastingur
heljartaki um sálina kreppa
svartir, kaldir fingur.
Ég veit að nafnið er ekki í neinu samhengi við ljóðið sjálft.. og þó?