Formendaspá
tókstu því sem gefnu
að geta troðið það út í eilífðina
af súkkulaði og sjálfsfróun
rauðvínsslettum og sálarangist?

eldurinn varðaði veginn
uns pómóþeifur kæfði hann
nú stöndum við stök meðfram kantinum
og þegar við föllum
er skógurinn mannlaus  
Erla Elíasdóttir
1984 - ...


Ljóð eftir Erlu Elíasdóttur

Bruni um nótt
Án titils
Hjartað er stimpilklukka
Ólga
Það er einskonar
Vandleg andamál
Formendaspá
Samt sumt
2SÞ
Ekkisens