kampavínshaf
ég hef
fengið nóg
af kitlandi dulúðinni

undir
yfirborðinu

þar sem enginn sér loftbólurnar
líða frá vörum mínum

hata
hvernig mér líður
þegar ég
er
að drukkna
fyrir allra augum

langar

að baða mig
í fyssandi úðanum

dreymi í súrefnisfirrðinni
milli svefns
og vöku

fögnuðinn
þegar tappinn flýgur
og ég fæ loks að upplifa

algleymi sigurvegarans
 
Hugskot
1958 - ...
júní 2007
allur réttur áskilinn höfundi


Ljóð eftir Hugskot

Sólsetur
eins og fiðrildið
þú mátt!
pestarbyrjun
afdrep hugarflugunnar
gleymska
vorkvöld
orðvana
poppheimurinn
rætur
þurrð
fyrsti snjórinn
hvítskúrað
fingraför
ved dyrehavsbakken
blossi
leiði
lífslygin
von
yrkisefni alvöru ljóðskálds
haustregn
oddaflug yfir lauginni
á áætlun ?
Bankastræti
Pollýanna
raf magn
almannarómur
eins og álfur út úr hól
í lagi
risessan
kampavínshaf
Regnbogamynd úr Þverholtinu
Svalhöfði
Kári
íslenskt vor
morgunkoss
haust
hauststilla
biðstöð
time flies
júlídagur
andans þoka
dagrenning í lífi letiskálds
nafli alheimsins
frasar
aðventublús