Þegar litirnir fara að hverfa úr heilanum
Litefnahrörnun sjónu
sjónudepilsrýrnun
Gulur gáll gulur gáll okkurgulur gállinn,
gefðu mér að éta með þér gerðu bara það.
Kasta þú til mín smáflís af kjötflykkinu sem þú gengur með í rassvasanum.
Þegar þú ert búinn að því komdu þá í bað.
Ég skal drekkja þér í eigin drullu
tíu fingur upp til guðs
Svo tek ég inn eitur
til að vera hjá þér
Rotnum saman í helvíti við rómantíska loga
á meðan kölski þerrar klökkvann af hvörmum sínum.
Öndum að okkur brennisteini, drekkum brennivín,
bjóðum Adolf í Abendbrot.
Þú ert það eina í lífi mínu sem er grátt