Menntaskólinn í Reykjavík
Hér við lærðum ljóð og sögur
lífs af undurmerkri braut.
Aldrei gleymast árin fjögur,
sem okkur féllu vel í skaut.
Í hjörtum okkar ávallt lifir
ástkær minning, gleðirík.
Tignarlegur trónir yfir
Tjörninni í Reykjavík.

Gamli skólinn stendur sterkur.
Stolt er efst í hugum vor.
Yfir sveimar andi merkur,
sem okkur veitir dug og þor.
Að takast á við æðstu þrautir
er eitt af vorum markmiðum.
Við ryðjum okkar bestu brautir
með byr frá Menntaskólanum.

Vorar dyr með lífsins lyklum
Lærði skólinn hóf á gátt.
Á lofti höldum heiðri miklum
er héðan göngum, teit og sátt
við árin sem nú eru að baki
þótt ávallt lifi í hugum vor.
Komum, fögnum með koníaki.
Kætumst, stígum dansins spor.

Við göngum héðan glöð í bragði,
gáskafull með bros á vör,
því Menntaskólinn leið vor lagði
um ljúfan veg - hin bestu kjör.
Tíminn hér er töfrum slunginn,
hér tendrast lífsins rómantík.
Mikilsverður er magni þrunginn
Menntaskólinn í Reykjavík.  
Steindór Dan
1987 - ...
feb '08


Ljóð eftir Steindór Dan

Ástarljóð
Andi jólanna
Prófaljóð
Á mótum tveggja ára
Á afmælisdegi föður míns
Gömlu skáldin
Vinaminni
Þegar ellin færist yfir
Vinarmissir
Til dýrðlegrar stúlku
Vitleysingarnir
Tíminn læknar öll sár
Við Ölfusfljót
Skáldið sem hætti að yrkja
Rammgerður miðbæjarróni
Símasölumaðurinn
Íslenskir málshættir og orðtök
Þú kveiktir ást í hjarta mér
Níði snúið á íslenskt veður
Á afmælisdegi móður minnar
Ljúfsár ljóð
Eitt sinn var löglegt að drepa
Kind
Tveggja manna tal
Leikfimitími í Menntaskólanum
Sendiför
Sumarferðir
Lampalimra
Bjartasta ljósið
Á Þjóðarbókhlöðunni
Lestur undir próf í heimspeki
Misheppnað ástarkvæði
Atómljóðin
Þjóðaréttur
Jenni ríki
Þór
Vörðurinn
Ástfangið hjarta
Kveðja til Eskifjarðar
Hjólabrettavillingurinn Ólafur
Sumarlok
Árstíðaskipti
Vetrargrýla
Golfheilræði
Martröð
Evrópuréttur
Sumarstúlkan
Noregur vs. Ísland, sept 2008
Í varðhaldi jarðar
Gullbrúðkaup ömmu og afa
Hvers virði?
Best er að blunda á daginn
níþ nÁ
Bráðum
Besta ljóð í heimi
Heilræði
Ástarsonnetta
Atómljóð
Úti frýs
Til hamingju með daginn!
Parið eftir dansnámskeiðið
Náðargáfan
Minning
Til eru hús -
Menntaskólinn í Reykjavík
Michael Jackson