Minning
Ég elskaði þig svo mikið.
Þótti svo undur vænt um þig
og þykir það enn.
En nú ertu ekki hér
heldur horfin á braut.
Dvelur í fjarska
laus úr viðjum lífs hér á jörð.
Ég ylja mér
við góðar minningar
sem við áttum saman
ég og þú.
Mun alltaf muna
hversu einsök þú varst.
Megi englar Drottins
vaka yfir þér
í dag og alla daga.
 
Karítas
1987 - ...
11.11.09


Ljóð eftir Karítas

Er lífið dans á rósum?
Bara ef
Slæmt útlit
Hugsanir
Ein
Spegilmyndin
Er þetta ég?
Hvar ertu?
Brosið
Að falla eða vona
Ljósið
Takk
Tilgangur lífsins
Án titils
Hræðsla
Ský og tár
Stormur
Myrkur
Allt svart
...
Er ég eitthvað?
Lífið - Yndislegt
Kramið hjarta
Það hvarf
Við vitum ekki
Minning