Til Norðfjarðar
Þar sem lognið ávallt hló,
við aldrei munum gleyma.
Okkar æska í kyrrð og ró
minningarnar streyma.
Fjallahringur og fjarðasýn
alda í fjöru ómar.
Ávallt best þá sólin skín
sjávarniður hljómar.
Margt er breytt og annað nýtt
tímans tönnin vinnur.
Eins og vorið bjart og hlýtt
okkar hjarta finnur.
Norðfjörður í logni og sól
við áttum samveruna.
Þetta fyrrum höfuðból
þannig viljum muna.
við aldrei munum gleyma.
Okkar æska í kyrrð og ró
minningarnar streyma.
Fjallahringur og fjarðasýn
alda í fjöru ómar.
Ávallt best þá sólin skín
sjávarniður hljómar.
Margt er breytt og annað nýtt
tímans tönnin vinnur.
Eins og vorið bjart og hlýtt
okkar hjarta finnur.
Norðfjörður í logni og sól
við áttum samveruna.
Þetta fyrrum höfuðból
þannig viljum muna.