o f u r l i ð i
ég fann að tilfinningarnar voru að gefa sig.
og úr þreyttum augum kreistust fram tár sem fundu hvergi jarðveg.

þú býrð í húmaskoti hugsanna minna og ræður gangi ljósins.

eitthvað sem ég mun ekki gleyma var þegar þú kveiktir þau í fyrsta sinn.

ég fann hvernig þú lýstir upp heimkynni mín og ég varð sátt.

Hvernig get ég fundið réttu leiðina án þín?

þar sem það er enginn til að spyrja til vegar.  
Finney Rakel
1983 - ...


Ljóð eftir Finney Rakel

Viðhald
FrostFugl
Kveðja til ástvinar
Hraun
Fjaður
sumar
hugarangur
27.október 2002 Sunday, Bloody Sunday
Hughrif
vængbrotinn
o f u r l i ð i
leigubílaferð
S22
Gleymdur lykill
Úrklæðsla
Persónuleikinn sem dó
Birting