Lögbergskvæði
Kvæði ort í Lögbergi eða um Lögberg. Stundum þegar laganemar hafa kveðist á á facebook. Stundum án nokkurrar ástæðu.


Stofan mín hlýja, strengdu þess heit,
að styrkja minn metnað og elju.
Ég skal þá á altari gefa þér geit,
gamlingja, lambá og belju.

---

Lögbergsandinn lokkar börn
í löngum fræðahrófum.
En #$%& er sólin ósanngjörn
að sýna sig í prófum!

---

Beiskur dreypi'á köldu kaffi,
kvöldið verður ekki létt.
Má ég fresta facebookstraffi
og flýja þannig kröfurétt?

---

Kaffið staðið, kalt og rammt;
kvalasvaðið slíka.
Volað skarið virkar skammt
vitið farið líka

En þá ofan eygir von,
æ vil dofann drýgja.
Lokkar'í kofann, Lúðvíksson,
Lögbergsstofan hlýja

---

Er nú Bergið aftur krökkt
um prófatímabilið
og allir hugsa: „Er ég fökked
eða á ég Gullið skilið?“

---

Þótt ól sé hert og ausan tóm
og útlit svert að vanda,
haltu þvert í héraðsdóm,
þar handsal hvert skal standa.

---

Ef samningsfrelsið segir eitt
en sýnist annað stjórnarskrá,
er útilokað að breytu breytt
að bæði verði ofan á.


---

Þræði í gegnum þjóðarrétt
er þreytan tekur völdin,
snöggt mér sjálfum lofa létt
að lúlla fyrr á kvöldin.

---

Af einkunnunum ærinn held
að enginn verði sómi,
en auminginn ég áður geld
eigin sleggjudómi.

---

Eina vildi ég stöku, á kvöldi þessu kveða,
kann þakkir Svövu og Vöku fyrir þeirra part.
Ei má slá við slöku, nú er tími til að streða,
og tilkynna valdatöku fyrir Dagbjart.

---

Sést fyrir lokin þótt lesstofurykið
hylji mig hokinn með próftökuspikið
viljinn er fokinn og mannvitið svikið
en burt er ég rokinn í ölæðið mikið

og ölið skal fylla sárþyrst munnvikið  
Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson
1989 - ...


Ljóð eftir Dagbjart Gunnar Lúðvíksson

Draumurinn
NN
Útskriftarljóð Vignis
Stökur
Það sem þarf til að yrkja ljóð
Ljósin í læknum
Hljómfagra rósin
Bergið
Af Þórði gelli og fjórðungsþingum
Sléttuband
Ljóðastúlkan
Efnahagsundrið
Ástarkvæði I
Fimmtugsafmælisljóð fyrir pabba
Pælingar í afdráttarhætti
Sumarkveðja
Fimmtugsafmælisljóð fyrir mömmu
Ástarkvæði II (draugavísa)
Lögbergskvæði
Ný dýravísa