Niðurtúr Maníunnar
Gnístandi veggir lífsins
störðu á mig í hringiðu óttans
og bláir tónar urðu blárri
með eld í æðum
með tunglið á heilanum,
með sól á brjósti
og höfuðið í hendi
ég tók upp sleggju
og byrjaði að brjóta niður
veggi fortíðarinnar.
störðu á mig í hringiðu óttans
og bláir tónar urðu blárri
með eld í æðum
með tunglið á heilanum,
með sól á brjósti
og höfuðið í hendi
ég tók upp sleggju
og byrjaði að brjóta niður
veggi fortíðarinnar.
Óútgefið. Skrifað í kringum árið 2000. Kallað Gnístandi Veggir Lífsins eða Veggir Fortíðar/innar.