

Ég er ímynduð rödd frá tunglsljósinu
spegla mig i skrifaða glugga hugans
í dag er ég viljastyrkur
sem hefur flúið myrkur
og hof sljóleikans
í dag er ég ljóð að myndast
út úr hughvarfi skuggans.
Ég var afvegaleiddur skuggi sjálfs míns,
andi pípunnar sem leitaði á bakkann
niðrí fjöruna þar sem kistan
lá í fjöru grasinu.
veiddi kríuna kalda
og ruddi steinum ímyndunar,
hverfuls hugar annars hugar
annars vegar.
Ég hef kvatt þig ég var
því ég er í dag
án skuggans.
spegla mig i skrifaða glugga hugans
í dag er ég viljastyrkur
sem hefur flúið myrkur
og hof sljóleikans
í dag er ég ljóð að myndast
út úr hughvarfi skuggans.
Ég var afvegaleiddur skuggi sjálfs míns,
andi pípunnar sem leitaði á bakkann
niðrí fjöruna þar sem kistan
lá í fjöru grasinu.
veiddi kríuna kalda
og ruddi steinum ímyndunar,
hverfuls hugar annars hugar
annars vegar.
Ég hef kvatt þig ég var
því ég er í dag
án skuggans.