Sprikla Sprænur Áa
Viltu vita hvar þú fæddist?
Hinum megin við fjallið háa,
þar sem grasið grær
við rætur fjallsins.
Viltu vita drauma þína?
Þar sem regnið grætur
söltum tárum sjávar,
er mannabjörg trúar og vonar er.
Þar sem kistur
fylltar rósarblöðum
eru bornar úr sölum kirkjuklukkna.
Þar sem ástarþrár
á ökrum spretta,
lífið vaknar enn á ný,
lífið tekur ávallt við!
Hvar tekur endir við?
Við upphaf nýrra vona,
nýrra daga,
vorra tíma,
þar sem engann mann mun óttast!
Upphaf - endir - nýir tímar.
Kærleiksflóð af himnum drjúpa.
Sprikla sprænur áa
..ekki klára uppsprettur vatnsins það skal vera síkvikt!
Hinum megin við fjallið háa,
þar sem grasið grær
við rætur fjallsins.
Viltu vita drauma þína?
Þar sem regnið grætur
söltum tárum sjávar,
er mannabjörg trúar og vonar er.
Þar sem kistur
fylltar rósarblöðum
eru bornar úr sölum kirkjuklukkna.
Þar sem ástarþrár
á ökrum spretta,
lífið vaknar enn á ný,
lífið tekur ávallt við!
Hvar tekur endir við?
Við upphaf nýrra vona,
nýrra daga,
vorra tíma,
þar sem engann mann mun óttast!
Upphaf - endir - nýir tímar.
Kærleiksflóð af himnum drjúpa.
Sprikla sprænur áa
..ekki klára uppsprettur vatnsins það skal vera síkvikt!
1998