Innan fúinn viður
ég verð að tjá mig
um það sem er að hrjá mig
svo ég sýg ekki dýpra niður
ég er orðinn eins og innan fúinn viður
uppfullur af hatri heljar
ég fer aftur á mínar skeljar
innra stríð á mig herjar
þínar óskir guð eru hverjar?
aftur og aftur ég spyr þig aftur
innra stríð á mig herjar
þínar óskir guð, eru hverjar?
um það sem er að hrjá mig
svo ég sýg ekki dýpra niður
ég er orðinn eins og innan fúinn viður
uppfullur af hatri heljar
ég fer aftur á mínar skeljar
innra stríð á mig herjar
þínar óskir guð eru hverjar?
aftur og aftur ég spyr þig aftur
innra stríð á mig herjar
þínar óskir guð, eru hverjar?
2015