

Ég smeygi mér inn í ríki
kyrrðar uppsprettuna
umvafinn kærleika
þar sem viskan ræður ríkjum
ég leggst í þögnina
fell í algleymi
fell í faðm ástar
á sköpun lífsins og tilvistar alheims
vitund verundar
geislar bláum verndandi regnbogageislum
á veg minn...
á vegi mínum heim í hjarta
ég sný aftur frá ríki kyrrðar
þar sem viskan ræður ríkjum
umvafinn frið í faðmi kærleikans
ég opna dyrnar og halla þeim aftur
í hálfa gátt á eftir mér.
kyrrðar uppsprettuna
umvafinn kærleika
þar sem viskan ræður ríkjum
ég leggst í þögnina
fell í algleymi
fell í faðm ástar
á sköpun lífsins og tilvistar alheims
vitund verundar
geislar bláum verndandi regnbogageislum
á veg minn...
á vegi mínum heim í hjarta
ég sný aftur frá ríki kyrrðar
þar sem viskan ræður ríkjum
umvafinn frið í faðmi kærleikans
ég opna dyrnar og halla þeim aftur
í hálfa gátt á eftir mér.
Gömul fantasía frá árunum 1997-1999.